Skvísurnar
19.09.2008 17:13:58 / Sæunn

Ny bloggsida Sæunnar

Tar sem eg er flutt til Glasgow, Skotlands, til ad taka Masterinn i Vidskiptafraedinni hofum vid Atli opnad nyja bloggsidu tengdri teirri ferd.

Fyrir ta sem vilja fylgjast med ta er addressan:

www.saeunnogatli.blogspot.com

Kvedjur fra Glasgow,
:dSaeunn:d


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 20:43:29 / Hildur

Afmælistónleikar Sálarinnar

Við skvísurnar skelltum okkur á afmælistónleika sálarinnar á föstudaginn. Það var þvílík stemning og frábært að djamma allar saman enda hefur nú ekki verið gert mikið af því undanfarið þar sem að ég bjó í útlöndum um tíma og Eva og Ágúst áttu náttúrulega Maríu Líf.

Ég held að myndirnar segi meira en mörg orð og skelli því nokkrum hérna fyrir neðan.

ææi, ég er greinilega léleg í þessu:s. Myndirnar eru svo óskýrar ef ég stækka þetta eitthvað. Ætli það sé ekki bara best að þeim sem langar að skoða myndirnar kíkja á myndaalbúmið en það er linkur hérna vinstra megin.

kv. Hildur myndasnillingur (:$)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 12:32:19 / Hildur

Flutt í Kópavogin

Já já, mín er bara flutt í Kópavoginn :)  Við Kjarri fengum íbúðina okkar afhenta á fimmtudaginn.  Máluðum um kvöldið og fengum mjög góða hjálp hjá tengdapabba og Orra bróðir. Við þrifum síðan á föstudaginn og eftir það fluttum við bara inn :)  Helgin fór svo í það að taka upp úr kössum sem voru ekkert smá margir og að setja saman húsgögn.

Við ætluðum að gera tilraun á einum veggnum í stofunni og máluðum hann bláan. Þetta var flottur litur, a.m.k. leit hann þannig út í búðinni.  Þegar liturinn var síðan kominn á allan vegginn þá kom þetta hræðilega út.  Við þurftum því að fara aftur í búðina og kaupa annan lit. Maðurinn í málningadeildinni hafði nú samúð með okkur og lofað okkur góðum afslætti ef seinni liturinn kæmi líka illa út.  En sem betur fer kom hann mjög vel út :)

Þetta var nú ekki það eina sem kom upp á um helgina en meðal þess sem kom upp á var að ég fékk ísskápinn á tána á mér og raftækin sem við keyptum skiluðu sér ekki. Það kom svo í ljós að þetta seinna var reyndar okkur að kenna því þegar flutningamaðurinn með raftækin hringdi héldum við að þetta væri vitlaust númer þar sem við skildum ekki orð af því sem hann sagði :S  Þetta var sem sagt útlendingur sem talaði alls enga íslensku og sáralitla ensku. Það sem hann sagði á ensku var þar að auki með svo miklu hreim að það varð óskiljanlegt :S

jæja, best að halda áfram að vinna í ritgerðinni sem er orðin tæpar 30 síður.

kv. Hildur

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 12:56:03 / Sæunn

Hræðilegur laugardagur...betri sunnudagur?

Ég get svarið fyrir það...dagurinn í gær var vægast sagt ömurlegur...byrjaði á að fara í Toefl prófið og klikka svona hryllilega á tímanum...kem svo út úr prófinu og er þá með stöðumælasekt...þið hafið kannski heyrt það að í Noregi eru hvað hæstu stöðumælasektir sem þekkjast...alllaveg...mín hljóðaði upp á 8.000 - 9.000 kall!!! EKKI SKEMMTILEGT :^)

Eftir prófið ætlaði ég svo að keyra til Osló og gista á hóteli rétt hjá flugvellinum því ég á flug í dag til Aarhus, Danmörku...nei nei...viti menn..þá er svæðið sem flugvöllurinn og hótelið er á ekki staðsetjanlegt á GPS tækinu!!! Mér tókst nú að komast klakklaust til Osló...en eftir það...úfff ég vil helst ekki ræða það...til að gera langa sögu stutta tók akstursferðalag sem átti að taka 1 klukkustund u.þ.b. þrjá og hálfan klukkutíma!!! :evil: Shiittt ég var orðin svo tæp í skapinu að sem betur fer var ég að ferðast ein...;)

En ég skilaði mér loks upp á hótel og ákvað að fara að sofa og vakna í morgun og ekki spá meira í þessum ömurlega degi...varð samt að deila honum með ykkur.
Svona að auki..þá dreymdi mig að flugvélin sem ég er að fara í á eftir væri biluð og það kom ekki í ljós fyrr en við vorum komin í loftið...ég vona að þetta sé ekki ávísun á frekara ferðavesen í dag...er alveg búin að fá nóg í bili :lol:

En ég sit í makindum mínum uppi á hóteli og fæ mér að borða hádegisverð...er á fullu að vinna enda nóg af verkefnum sem verða að klárast fyrir morgundaginn :)

Næstu viku eyði ég svo í Aarhus...það verður fínt maður...þá verða tvær konur úr vinnunni líka...það er víst nóg að gera í Aarhus...en ég vonast til að komast í H&M og svala bjórþorstanum inn á milli :d

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 20:20:22 / Sæunn

Stödd í Noregi...og stúdera ensku

Já, nánar tiltekið í Fredrikstad :d...ég er í vinnuferð eins og hefur tíðkast svolítið hjá mér undanfarið...ég kom í gær og keyrði frá flugvellinum í Osló til Fredrikstad...ég var svo öflug að keyra löglega allan tíman...það var nefninlega búið að vara mig við hraðamyndavélunum sem eru út um allt hérna 8|

Á milli þess sem ég vinn á daginn er ég að reyna að læra fyrir próf á kvöldin...jebb...hver hefði trúað því að ég væri að læra undir próf um þessar mundir!!! Jú jú ég tók mig til og skráði mig í TOEFL próf hérna úti í Noregi...það er alltaf svo mikið vesen á þessu prófi heima á Íslandi að ég ákvað bara að nýta tækifærið á meðan ég er í Noregi :lol: Það kemur svo bara í ljós hvernig mér á eftir að ganga á þessum blessaða prófi...enda ekki mikill tími til lærdóms þessa dagana...:$

Alveg merkilegt hvað maður étur mikið þegar maður er að læra...ég var alveg búin að gleyma þessu...núna á tveimur klukkustundum er ég búin að borða Pizzu + pastasíuhnetur + þurkkaða ávexti + Twix + þónokkra Tyrkist peber brjóstsykra + 1/2 Bounty!!!! hvað er í gangi...nákvæmlega enginn sjálfsagi :^)

Annars er allt gott að frétta...stóra systir var að útskrifast úr meistaranáminu uppi í HÍ síðasta laugardag og að sjálfsögðu mætti maður í smá veislu til hennar ... til hammó elsku sys :haha:

Jæja, best að halda sér við efnið: Cracking the reading section...næst á dagskrá 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 17:07:57 / Hildur

Vestrið

Eva og Ágúst héldu upp á afmælið sitt á föstudaginn með þvilíku partýi :) Þemað í partýinu var Villta Vestrið. Það var greinilega stemning fyrir þemanu og margi mættu í frábærum búningum. Þetta var ótrúlega vel heppnað og skemmtilegt kvöld. Ég get ekki annað en sett inn nokkrar myndir af kvöldinu, svo eru fleiri myndir á myndasíðunni okkar Kjarra: http://picasaweb.google.com/kjartanvt/WildWest

 Ok, það er greinilega ekki hægt að setja inn myndir.  Set þær inn seinna en endilega skoðið myndirnar á síðunni hérna fyrir ofan :)

kv. Hildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 14:48:02 / Sæunn

Suzuki GSX-R Veisla...

Já já já kæra fólk...Sæunn er alveg að missa sig þessa dagana....

Við Atli ákváðum að fjárfesta í öðru mótorhjóli fyrir sumarið...þannig að núna eru tvö hjól í bílaskýlinu :haha: Hérna er svo nýji gripurinn...

Þetta er svo hitt hjólið okkar...það er nú ekki síðra :haha:

Þetta sumar verður baaaaara draumur :haha: :haha: :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 19:49:51 / Sæunn

Sushi og Kampavín

Í gær þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni um kvöldmatarleytið var ég einhvern vegin ekkert svakalega svöng þannig að ég kom við á Sushi stað og keypti nokkrar Maki rúllur. Maður er orðinn frekar þreyttur á skyndibitanum...

Allavega þá labbaði ég upp á hótel með Sushi-ið mitt og ætlaði að fá mér það uppi á herbergi í rólegheitunum...og viti menn....þegar ég kom inn á herbergi var miði á skrifborðinu sem sagði að í tilefni þess að veturinn væri að styttast og liði fjótt að vori þá ætlaði hótelið að bjóða mér upp á Kampavín :haha: Og þegar ég opnaði mini-barinn þá var lítil kampavínsflaska þar inni...en frábært...þvílíkt snilld að fá sér Sushi og Kampavín :haha:

Annars er bara vinna vinna vinna að frétta af mér...en ég lenti þó á séns á leiðinni í vinnunna í gær...jább og það meira að segja á lestarstöðinni sem ég labba alltaf framhjá á leiðinni í vinnunna!!! Einhver gaur sem kaup æðandi upp að mér og vildi endilega spjalla....ég sagðist bara ekki skilja neitt í þýsku og þá stamaði hann einhverjum glötuðum pick up línum á mig á ensku!!!Vá hvað ég fór hjá mér...maður er ekki vanur svona enda KUNNA ÍSLENSKIR KARLMENN EKKI AÐ REYNA VIÐ KONUR...en ég mæli nú reyndar ekkert með því að íslensku karlmennirnir taki upp á svona athæfi næst þegar þeir fara út á stoppustöð...en þetta var engu að síður brosleg byrjun á deginum :lol:

Jæja, best að fara að pakka niður því á morgun flýg ég heim...get ekki beðið eftir að hitta alla...og þá meina ég alla...ekkert smá langt síðan ég hef séð allt mitt fólk...og auðvitað er Atli efstur á lista :haha:

Auf Wiedersehen 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 18:31:33 / Sæunn

Hamborgari Hamborgarína...

Já já mín í Hamborg aftur...maður er búin að vera svolítið mikið hérna undanfarið og mín búin að versla sér alveg nóg...eða svona næstum því ;) Ákvað að prófa að googla einhverjar mótorhjólabúðir og rakst á nokkrar í göngufæri frá Hótelinu. Ætla í leiðangur á morgun...þarf eiginlega að kaupa mér bakbrynju...ekki sniðugt að taka áhættuna annað sumar:S

Ég komst svo líka að því að það verður einhver risa mótorhjólasýning hérna næstu helgi :D Jebb...ekki leiðinlegt...þannig að á föstudaginn ætla ég að kíkja á sýninguna....Suzuki er með stóran bás þarna og aldrei að vita nema ég finna mér eitthvað sniðugt í viðbót til að kaupa fyrir hjólasumarið :haha:

Ég kom upp á hótel í gærdag en ferðataskan mín náði ekki tengifluginu....Starfsmenn flugvallarins sögðu að hún yrði bara send með næsta flugi og keyrð upp á hótel til mín...svo þegar klukkan var orðin 22 í gærkvöldi og ekkert bólaði á töskunni var ég orðin nokkuð viss um að ég myndi fara í sveittu ferðafötunum, ótilhöfð og ótannburstuð í vinnuna daginn eftir...en sem betur fer kom taskan mín fyrir svefn svo ég varð mér ekki til skammar í vinnunni í morgun :lol:

Læt þetta duga í bili...best að taka nokkur vinnutest fyrir morgundaginn...
Later...
Sæunn


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 09:51:49 / Sæunn

Frúin í Hamborg

HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA??? Þetta má auðvitað alls ekki gerast....við erum alveg hættar að blogga. Hildur á þó heiðurinn að því að halda uppi blogginu í allt haust og vetur. Nú er kominn tími á mig að gera eitthvað..... 

Ég sit hérna uppi á hóteli, nýbúin með morgunmatinn. Sólin skín úti þó það sé nú ekki mikill hiti, kannski 5 gráður eða svo. Ég er búin að vera nokkuð erlendis undanfarið, desember og janúar fóru í vinnuferðir til Hamborgar. Labbaði út um allt í gær að skoða mig um og kíkja í búðir. Það er svo mikið af verslunargötum hérna að það er æði. Ein gata er svona eins og 5th Avenue...bara dýrar búðir með flottustu hönnuðunum Louis Vuitton, Chanel, Gucci...ég læt mér nægja að skoða í gluggana í þetta skiptið :D

Ég ætlaði að vera svo dugleg að fara í ræktina á nýja árinu....hef ekki séð það gerast enn...og hérna á hótelinu þarf ég nú bara að taka lyftuna niður og þá er ég komin í fitness centerið sem er á hótelinu....ER TIL MEIRI LETI? það koma tímar og ráð...

Fullt af fólki sem á afmæli í janúar...Hildur auðvitað, Júlli Tengdó, Ágúst, Diddi Tengdó, Sveina Tengdó, Þórdís, Soffía....ég er pottþétt að gleyma einhverjum :$ En þetta er samt alveg hellingur...miðað við að þetta er allt fólk sem er nálægt manni :D

Ég get ekki beðið eftir að koma heim og taka fyrsta hjólarúntinn á árinu...frétti reyndar að það hafi snjóað heima í gær...en næst þegar ekki er snjór, rigning, frost eða stormur (ég gæti þurft að bíða lengi...8|) þá ætla ég að taka rúnt og fá fílinginn fyrir sumarið :haha:

Jæja, læt þetta duga í bili...Frúin í Hamborg kveður :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 22:40:45 / Hildur

Næstum komin heim

Já nú er bara eftir morgundagurinn og miðvikudagurinn svo fer ég heim á fimmtudaginn. Þetta er frekar skrýtið, ég hef samt varla tíma til að hugsa út því það því það er svo margt í gangi.
Seminar (umræðutími) í fyrramálið og svo seminar á fimmtudagsmorgun sem hópurinn minn mun stjórna, og ég er ekki byrjuð að undirbúa!!! Svo er próf á föstudaginn heima á klakanum. Fyrir utan það að ég er að flytja úr íbúðinni/herberginu til Íslands. Ýmislegt sem þarf víst að huga að, þrífa, skila lyklum, bóka tíma til að leigusalinn geti farið yfir hvort allt sé í lagi og vel þrifið, o.s.frv.
Ég gaf mér samt tíma um helgina til að kveðja mínar helstu vinkonur hérna í Uppsala. Bauð þeim í mat og kíkti svo með þeim á einn stúdentabarinn.
Á laugardagskvöldið bauð Katarina mér ásamt fleirum í mat en vildi með því þakka okkur barnapíunum fyrir að passa hann Yunus litla.



Hérna erum við að fara að borða í þakkarmatnum.
Marie er í miðjunni í grænum bol, svo frá vinstri: Therisa, Yunus, Antonia, Diana og Katarina. Það var rosa fínt að vera boðin í mat. Ég gat samt bara verið mjög stutt enda fór ég aftur að læra fljótlega, hefði verið mjög gaman að vera lengur. En það er víst nóg frí framundan eftir klukkan korter yfir fjögur á föstudaginn :)

Yunus og Therisa

Hérna erum við á Värmlands-skemmtistaðnum, en það er skemmtistaður sem eitt af nationunum (nemendafélugunum) rekur. Ég, Germaine, Sebastian og Caroline.


Hérna eru Pauliina og Caroline. Það sést í bókahillur í bakrunn, en á daginn er þess salur notaður sem bókasafn og lesstofa !! um helgar er salurinn hins vegar dansgólf.


Hérnum erum við að sötra á kokteilum sem stelpurnar buðu upp á :) Mig minnir að ég hafi fengið mér Lady in red



Ég gleymdi alveg myndavélinni. Fattaði ekki fyrr en við vorum að fara að taka myndir. Og þá voru Katarina og Yunus þegar farin.

Annars er ég orðin rosa spennt að koma heim. Hlakka líka mikið til að klára prófið og geta farið að njóta lífsins :) Svo hlakka ég náttúrulega óendanlega mikið tið að hitta Kjarra aftur sem og fjölskylduna og vinina.
Jæja, farin í háttinn enda verða næstu dagar erfiðir.
kannski síðustu kveðjurnar frá Svíþjóð
Hildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 11:25:37 / Hildur

síðustu dagarnir

Já það er ekki langt þar til ég fer aftur heim, bara 6 dagar. Og vá, þetta verða sko bissí dagar. Ég á enn eftir að mæta í tvo umræðutíma og undirbúa þá og þar á meðal mun hópurinn minn sjá um að stjórna einum tímanum, sem er akkúrat um morguninn sem ég flýg heim. Ég er í umræðutímanum til hálf 11 og korteri síðar þarf ég að vera komin út á lestastöð til að ná lestinni út á flugvöll. En ég verð að taka flugið heim á fimmtudaginn því ég er í prófi heima á Íslandi á föstudagainn :S Þetta verða skrautlegir dagar hjá mér.
Þannig að ég verð að taka allan farangurinn minn með mér í timann heheh og já ég vildi að ég væri ekki með svona mikinn farangur. Ég er hrædd um að vera komin með mikla yfirvikt en svo á ég enga vikt og get því ekki athugað hvað farangurinn minn er þungur.
Kannski ég endi með því að fara heim í þrem peysum, sokkabuxum, buxum, pilsi og kannski 2 bolum til að taskan verði léttari. Spurning hvort ég komi hlaupaskónum yfir stígvélin mín!!!
Annars ætla nokkrar vinkonur mínar að koma í mat í kvöld en það verður líklega í síðasta skiptið sem ég hitti þær. Ætla nú bara að elda e-ð fljótlegt svo ég geti lært fram á siðustu stundu
en já, talandi um lærdóm, verð að halda áfam
bestu kveðjur
Hildur

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 13:56:38 / Hildur

Fréttir

Á laugardagskvöldið síðasta trúlofuðum við Kjarri okkur :) Við erum reyndar ekki búin að ákveða dag og hvað þá hvernig brúðkaupið verður en ég ætla að hella mér í brúðkaupssíðurnar í jólafríinu :)
Þetta var ekkert smá æðislegt kvöld og hefði ekki getað verið betra. Við höfðum svo brallað ýmislegt um daginn líka og fórum m.a. í nýja Tónlistar-og ráðstefnuhúsið hérna í Uppsala sem íbúarnir hér eru mjög svo stoltir af (samt ekki eins stoltir og af Linné og ég var nú bara hissa að húsið yrði ekki skýrt tónlistarhús Linné eða e-ð álíka). En húsið er ágætlega hátt og þar er hægt að fara upp á efstu hæð og þar sér maður útsýni yfir stóran hluta borgarinnar. Það var mjög flott þarna og gaman að skoða útsýnið.


Þessi mynd er tekin upp við höllina í Uppsölum. En þar er líka frábært útsýni yfir bæinn. Og þar var einmitt þar sem við trúlofuðum okkur.
Hérna erum við hjá höllinni með borgina (eða hluta af henni) bak við okkur

Heima áður en við fórum út að borða.


Í tónlistar-og ráðstefnuhúsinu. Það sést vel í dómkirkjuna og höllina.


Útýni í aðra átt. Þar sem skógurinn er, þar búum/bjuggum við.
Hefði nú viljað vera búin að blogga um þetta fyrr. Var bara í prófi frá miðvikudeginum til fimmtudags og mátti því ekki vera að mikið meiru en að læra.
bestu kveðjur
Hildur


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 20:41:37 / Hildur

hvað er að frétta frá Uppsala?

Já við höfum verið að bralla ýmislegt undanfarið. Í síðustu viku fórum við út að borða með nokkrum vinum á stað sem eitt af nemendafélögunum rekur. Við fundum samtals 4 hár í matnum (sem betur fer ekki hjá okkur Kjarra) en annars var maturinn ágætur. Allavega skemmtilegt kvöld og alveg kominn tími hjá okkur Kjarra að kíkja á einn af nemendastöðunum enda höfum við ekki farið á neinn af þeim lengi. Hérna eru nokkrar myndir af kvöldinu.
Nokkrar hollenskar sem borðuðu með okkur.
Ég og Paulin (frá Hollandi)

Pauliina (Finnlandi) og Kjarri.
Hérna fyrir ofan er Paulinna góð vinkona mín frá Finnlandi en hún er líka að læra lögfræði. Við ætlum svo ásamt fleirum á morgun að fara í konunglegu ópenua í Stokkhólmi að sjá ballettinn Rómeó og Júlíu. Kjarri vildi ógömulega koma með :) Það verður örugglega rosa gaman að koma inn í þessa flottu byggingu og inn í salinn. Við erum nú að gera þetta út af stemningunni og góða stúdentaverðinu frekar en til að sjá ballettinn.
Á föstudaginn komu nokkrir vinir í heimsókn og við horfðum á tælenska hryllingsmynd sem Germein vinkona mín fullyrðir að sé sú besta sem gerð hafi verið. Myndir heitir Shutter og var mjög góð en frekar spúkí. Ætla samt að reyna að gleyma þessari mynd alveg áður en Kjarri fer svo ég þurfi ekki að sofa með ljósið kveikt eins og Germein. En hún hefur mjög gaman af hryllingsmyndum en verður svo smeik eftir þær að hún sefur með ljósin kveikt :)

Á laugardaginn var svo þýska vinkona okkar hún Katarína með afmæli í heimaistnni ásamt annarri. Það var öllum í húsinu boðið með auglýsingu sem hengd var upp. Við vorum mjög forvitnar að sjá hverjir myndu mæta. Bjuggumst við sumum og öðrum ekki. T.d. er einn nágranni okkar sem heilsar okkur helst aldrei og svarar jafnvel ekki kveðju. Haldiði að hann hafi ekki mætt með gjöf og var manna hressasti og hinn opnasti og fínasti náungi. Ekki alveg sú mynd sem ég hafði af honum fyrir :)
Afmælisgestir

Hérna er Katarina með Thomasi kærasta sínum. En hann er í heimsókn hérna frá Þýskalandi.


Katarina og ég.

Styttist óðum í að við förum heim. Dótið okkar fer með Eimskip á föstudaginn og Kjarri á sunnudaginn. Þá tekur við lærdómsmaraþon hjá mér og ég verð svo komin heim í tíma til að taka eitt próf heima 14. eða 15. des.
bless í bili
Hildur

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 22:07:47 / Hildur

Carl von Linné

Það er óhætt að segja að Linné er stolt Uppsalabúa. Síðan við komum hingað út höfum við tekið eftir að það er Linnégata, Linné-kaffihús, Linnégarður (tveir), Linnéveitingastaður, Linnéstrætó, Linnésafn, Linnéhús, Linnédagur, Linnéhátíð, Linnébækur (fullt af þeim) Linné-hárgreiðslustofa og ég veit ekki hvað og hvað. Það er allavega óhætt að segja að þeir eru ofsalega stoltir af honum Linné sínum.
En allavega þá var ég að byrja í nýju fagi á mánudaginn sem er Samanburðarlögfræði með einhverskonar sögulegu og heimspekilegu ívafi. Og hvað haldiði, fyrsti tíminn var haldinn í Linnégarðinum og fór allur sá tími í að tala um flokkunarkerfið sem Linné hannaði en kerfið flokkar plöntur!!! og ég er ekki enn búin að komast að því hvernig það tengist á nokkurn hátt samanburðarlögfræði!! Það eina er að réttarkerfi eru flokkuð í flokka en ég skil samt ekki hvernig heill tími gat farið í að tala um flokkunarkerfi planta.
Annars höfum við verið að prófa okkur áfram með Skype, höfum undanfarnar helgar heyrt í Loga og Tassanee í Kanada. Það er ótrúlega gaman að heyra í þeim og það sem gerir þetta enn skemmtilegra er að þau eru með vefmyndavél eins og við og þá færist maður einhvern veginn nær þeim :) Við höfum t.d. sýnt þeim herbergið/íbúðina okkar og þau sýnt okkur allt húsið sitt með skypinu. Algjör snilld :)
Og núna áðan prófuðum við hópsamtal. Það voru sem sagt ég og Kjarri hérna í Uppsala, svo hjónakornin í Kanada, Orri og mamma í Bláskógunum og svo Harpa í Miðleytinu. Við heyrðum reyndar líka í Degi þar sem hann var að læra í sama herbergi og Harpa var í og það heyrðist vel þegar hann sönglaði og blístraði í hinum enda herbergisins. Þetta varð voða fyndið þar sem við héldum á tímabili að það væri einhver ókunnugur kominn inn í samtalið sem væri að syngja :D Föttuðum ekki að Dagur væri þarna líka.
Það er heldur betur farið að styttast í heimkomu hjá okkur en Kjarri fer heim eftir tvær vikur og ég svo tveim vikum seinna!! Hlakka ekki til að vera Kjarralaus í tvær vikur en ætla að drekkja mér í lærdómi og jafnvel líkamsrækt þessar tvær vikur svo ég verði ekki of einmana.
Jæja verð að halda áfram að læra enda Seminarium (einskonar umræðutími) í fyrramálið. Engin kemst upp með að tala ekki á þessum Seminarium og þar sem sænskan mín er nú ekkert frábær þá ætla ég að vera búin að skrifa allt niður sem ég get hugsanlega þurft að bjaga út mér á sænsku.
bless í bili
Hildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 56